Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Könnun

Má bjóða þér í vör vinur/vinan?

Hin hliðin á mér.

Prófíll að hætti fótbolti.net.. Þar sem ég tel mig ekki geta komið í hin hliðin á fótbolti.net þá ætla ég bara að stela þeirra spurningum.

Fullt nafn: Gælunafn: Heimir Þór Árnason a.k.a Homie, lomez, “Q”ee,Heimsi

Aldur: 21 að verða 22

Giftur/sambúð? Trúlofaður flottustu og fallegustu stelpu í öllum geiminum, Ingibjörgu Önnu

Börn: Já 2 (fartölvan og lcd sjónvarp)

Hvað eldaðir þú síðast? Uuuuu…… grillaði fyrir einu ári kjúklingabringur fyrir ástina mina.

Hvað villt þú fá á pizzuna þína? Pepp og svepp, ekki verra að hafa smá hvítlauk með

Hvernig gemsa áttu? Nokia eldgamlan

Uppáhaldssjónvarpsefni? Þessa dagana er það Joey, friends, prison break, Hm í fótbolta og desperet houswifes.

Besta bíómyndin? Blow, Butterfly effect og liar liar

Hvaða tónlist hlustar þú á? Allskonar, allt frá westlife til rokk

Uppáhaldsútvarpsstöð? Ég verð að segja 91,9, mín skoðun.

Uppáhaldsdrykkur: Mix í augnablikinu og svo nottla coke í dós

Uppáhaldsvefsíða: Verð að segja www.bertinn.bloggar.is og www.fotbolti.net

Ertu hjátrúafull(ur) fyrir Djamm? Hvernig þá? Verð að kaupa inneign á síman minn og eiga pening inn á kortinu.

Hvernig er best að pirra fólk? Rassa það í burtu, gera hljóð(inga)

Hvaða liði myndir þú aldrei spila með? Chelsea!!

Hver var átrúnaðargoðið þitt á yngri árum? Það er soldið fyndið en ég horfði ekki mikið á sjónvarp en það var Höddi frændi sko.

Erfiðasti andstæðingur? Ragnar sigurðs.

Besti samherji? Sætasti sigurinn? Diddi mundi ég nú segja, og sætasti sigurinn er þegar við eða raggers kannski unnum ÍA 6-0

Mestu vonbrigði? Að meiðast í baki og geta ekkert spilað bolta af neinu viti síðan

Hvað er þitt uppáhaldslið í ensla boltanum? Gunners að sjálfsögðu

Uppáhaldsknattspyrnumaður? Henry og Beckham

Besti íslenski knattspyrnumaður fyrr og síðar? Eiður að sjálfsögðu, skil ekki fólk á mínum aldri sem getur sagt Ásgeir sigurvins eða eitthvað álíka þar sem það sá hann aldrei spila.

Efnilegasti knattspyrnukona landsins? Ingibjörg Anna
Sigurðardóttir, átti aldrei að hætta.

Fallegasti knattspyrnumaðurinn í deildinni? Bertinn, þarf ekkert að útskýra það neitt nánar, tékkið bara á msnið hans

Fallegasta knattspyrnukonan? Ingibjörg að sjálfsögðu.

Grófasti leikmaðurinn? Einar Pétur kemur þar sterklega til greina.

Besti íþróttafréttamaðurinn? Höddi magg, en þeir sem ekki vita að þá á hann son....................... Og heitir hann Maggi Hödd.

EKKI besti íþróttafréttamaðurinn? Gaupi, sömu frasarnir hægri vinstri

Hver er mesti höstlerinn Á djamminu? Bertinn!

Hefurðu skorað sjálfsmark? Nei Ekki svo ég muni.

Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Ok þau eru nokkur. Einu sinni vorum við að spila á móti þrótt í 3 flokk og krissi vald var að spila með okkur ásamt Jóa sænska, krissi gaf á jóa í dauðafæri og jói misti boltan mjög langt frá sér og þá öskraði krjánninn, vá þetta er eins og að gefa á ljósastaur, ég hló alveg þangað til að leikurinn var búinn.

Spilar þú Championship Manager tölvuleikinn? Shit, við erum að tala um vandamál.

Hvenar lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokk? Æfingarleik á móti þrótt 2004, ekkert til að hrópa húrra fyrir ég veit.

Hvernig finnst þér fotbolti.net? Snilld

Kíkir þú oft á fótbolti.net? 5-10 sinnum á dag

Ef þú mættir breyta einni reglu í fótbolta, hverju myndir þú breyta? Að það væri ekki hægt að breyta neinum reglum, flott eins og þetta er.

Hvern vildir þú sjá á sviði? Bertan, been there og vill sjá það aftur

Hvað finnst þér leiðilegast að gera á æfingu? Hita upp.

Hver er frægasta persónan sem að þú ert með í farsímanum þínum? Ætli það sé ekki Guðmundur viðar mete a.k.a Bambinos

Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn í öllum heiminum? Það mun vera hvar sem er ef ástin mín er með.

Hversu lengi ertu að koma þér í gang á morgnanna? Shit við erum að tala um klukkutíma

Hver er uppáhaldsÍÞRÓTTAMAÐURINN þinn? Henry, Beckham og wade.

Fyrir utan knattspyrnu, fylgist þú með öðrum íþróttum? Já öllum meira að segja krulli

Hver er uppáhalds platan þín? Uuuuuu…… Allar bubba plöturnar

Hvenar borgaðir þú þig síðast inná Knattspyrnuleik?það er orðið soldið langt síðan, man það ekki

Í hvernig fótboltaskóm spilar þú? Nike

Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla? Öllu nema matreiðslu hehe

Hvað langar þér að taka þér fyrir hendur þegar knattspyrnuferlinum líkur? Búa til fjölskyldu og vera hamingjusamur með Ingibjörgu..

London Baby!!!

18. desember 2006 klukkan 01:02
Ég verð að byrja þessa færslu á að segja ykkur hvað ég hata þennan tíma sem er í gangi.
Vikurnar fyrir jól er leiðinlegasti tími í allri veröldinni, fólk verður snar bilað í hausnum fer yfir um og eyðir óendanlega miklum peningum á þessum tíma, svo fara allar í nett þunglyndi þegar allt er yfir staðið og valla hægt að tala við Það.
Ég reyni eftir fremsta megni að kúpla mig út úr þessari geðveiki og sló til og bauð minni heitt elskuðu unnustu til London.
Ég var að fíla mig feitast í þessari snilldar borg og mundi ég alveg vilja eiga heima þanna.
Við fórum í stæsta parísarhjól í heimi eða eitthvað og var það nett adrenalín spark að fara í það. Hér eru nokkrar myndir svo þið sjáið þessa geðveiki.








Maður er í focking 30 min á leið einn hring.Mana alla að fara í þetta ef þið farið til London!!!!
Heimir Þór Árnason
6 athugasemdir

ahahahahahahahahahaha................ tékkið á þessu!!!

05. desember 2006 klukkan 06:09
http://kvikmynd.is/video.asp?land=&offset=63&id=2608
Heimir Þór Árnason
3 athugasemdir

Össsss...... maður er bara að verða gamall.

18. október 2006 klukkan 21:59
Ja hérna hér, ég er ekki að digga það hvað þessi ár eru fljót að líða, eftir að ég fékk bílprófið og gat farið út að skemmta mér þá finnst mér eins og þessi ár séu helmingi fljótari að lýða, þetta er eitthvað sem ég er ekki að fýla áður en ég veit af að þá er maður bara orðinn 30 ára og allt bara að verða búið!!!!!!!

Ég meina ég er búinn að lifa í.......
21 ár
eða 264 mánuði
eða 1,147 vikur
eða 8,031 daga
eða 192,756 klukkutíma
eða 11,565,392 mínútur
eða  693,923,571 sekúndur þegar að þetta er skrifað.

Ég er búinn að eig svona helv.... sniðuga klukku frá því að ég fæddist sem segir mér þetta allt.

Jæja svo ámaður bara afmæli á sunnudaginn og ég held að ég verði ekki með neina veislu en ég mun gera eitthvað fyrir ykkur litlu kútarnir mínir.

Jæja ég nenni ekki að skrifa meira þannig ég segi bara seinna krakkar mínir.

Heimir Þór Árnason
4 athugasemdir

í vörina með þetta!!

13. október 2006 klukkan 03:08
Það eru eflaust margir hérna sem eru ekki alveg að digga það að fá sér í vör en það er ekki mitt vandamál, þessvegna ætla ég að lýsa hinni fullkomnu vör.

Það fyrsta sem maður gerir er að fá sér eitthvað hrikalega gott að borða svo er málið að klára að drekka það sem þú fékkst þér með svo er það tó(bakið) þú dregur þá sprautuna og dolluna upp og dundar þér við að setja bak í sprautuna en það sem að flestir feila á hér er að þeir ætla að vera gráðugir og setja fulla sprautu í vörina á sér og endar það alltaf með því að bakið fer að leka og þú færð þetta bragð upp í þig sem er svo fráhrindandi. settu að mesta lagi hálfa sprautu í vörina og leggstu nú fyrir annaðhvort fyrir framan tölvuna eða með tvö spil á hendi og spilaðu póker við sjálfan þig.
Þetta ætti ekki að klikka og ég skal segja ykkur það krakkar mínir að ef þetta er ekki fullkomnun í lagi þá veit ég ekki hvað fullkomnun er!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Svo ætla ég að skrifa smá um Fótbolta, Raggersinn okkar er vonandi að undirbúa brottför sína til svíalands og vonandi að gerast atvinnumaður í boltanum og vill ég að allir standi upp þegar að þeir lesa þetta og klappi 3 sinnum og singja raggers lagið (it´s the hardest thing).
Dreamteam er alveg gjörsamlega óstöðvandi, liðið skipar, Gunzinn da bomb, daði lúrusson Lomie homez, raggers Brown og markamassinn bertanovich. Þetta lið er til í að skoða öll boð um að spila bolta (þó að við vitum öll hver niðurstaðan verður) en alltaf hægt að skoða flott tilboð.

Svo klöppum við öll svona í lokin fyrir Ibba Balvins sem er bara þessi ljúfi gaur sem aldrei GLEYMIST!!!!!!!
Heimir Þór Árnason
10 athugasemdir

Sviti sigg og sæla.

26. september 2006 klukkan 20:15
Jæja krakkar mínir ég veit að þið eruð búin að bíða og bíða eftir því að ég bloggi eitthvað. Já ég verð að taka mér tak og sinna þessu jafn vel og ég gerði.
En jæja allavega hef ég haft afsökun síðustu 2 vikurnar, ég og Inga mín vorum nebbla að passa hús í 15 daga og þar var ekkert þráðlaust net.
Ég var nebba svo önnum kafinn í xbox tölvunni minni, ertu ekki að grínast Alli þú hefur smitað mig af xbox vírusnum sem þú hefur verið með í næstum hálft ár.

Þessi helgi maður, hún var fyndinn svo ekki sé meira sagt, svo vill ég benda mönnum á það að þagga gjörsamlega í mér þegar ég tek upp á þeim ósið að taka breska gaurinn á djamminu þetta er bara að verða vandræðinlegt, nóg að taka þetta á rex en þar sem Alli er bannaður þar for rest of his life að þá er þetta djók bara búið.

Raggers tók þessa könnun þessvegna fær hann pezzuveislu ala lomie homes og getur hann bara ráðið hvenær við tökum þennan svita.

OOOOHHHHHHHHH.......... Hvað það var sweet um síðustu helgi þegar Alli kom skel þunnur til mín og horfðum á Gunners taka man utd og flengja þá, hef heldur aldrei séð Alla eins hræddan að fagna, ástæðan kannski sú að við öskruðum eins og ljón og Mete var þanna líka frekar þunnur og ekkert rosalega sáttur með okkur.

Arsenal í kvöld og tippa ég á það að þeir taki þetta svona 2-0 með mörkum frá Gallas og Henry.


Heimir Þór Árnason
1 athugasemd

Hvar á maður að byrja?

05. september 2006 klukkan 18:46
Já eins og ég segi í fyrirsögninni þá veit ég ekkert hvar ég á að byrja eftir svona RRRROOOOSSSSSAAAAALLLLEEEEGGGGGAAAAA helgi.
Föstudagurinn byrjaði með því að við strákarnir fórum á völlinn að klappa fyrir raggers brown og sjá hann taka þessa ítali í blautt nefið.
Ég var búinn að vera pumpa Spertan að koma með mér og Raggers á djammið svo ég væri ekki einn í þeim pakkanum, jújú það tókst á endanum og við plötuðum líka Meterinn og Hverfis eins og hann lagði sig.
Vorum heima hjá tengdó í drykkjuleikjum sem var bara alveg bara ágætt, fórum svo bara í bæinn að dansa við raggers.
Helvvvvv......... Laugardagurinn byrjaði nottla með því að ég og Inga horfðum á Ísland skeina Norður Írum, ég er að segja ykkur það gott fólk að ef þið viljið meiri spennu og svita á meðan að þið eruð að horfa á leikinn þá verðiði að prófa að horfa á landsleik með Ingu minni hún alveg gjörsamlega missir sig og er bara bölvandi hinum og þessum ef að eitthvað gengur ekki upp og er maður bara svona hálf hræddur bara við hliðina á henni og er að reyna að útskýra fyrir hana að hann hefði aldrei getað unnið boltan þanna en þá er hún með svör við þessu öllu og verður maður bara alveg kjaft stopp.
Svo var það bara kvöldið sem var tekið með stæl þar sem við hittumst nokkrir strákar heima hjá daða að spila og drekka og gekk það alveg bilaðslega vel upp og endaði það með því að Raggers og Maggers splittuðu pottinum.
Annars var endalaust gaman að sjá Jolla Bingo þanna meðal oss og var hann bara að spila þrusu vel en það er bara eins og það er að það er ekki á allt kosið í þessu. en hann kom nú samt með okkur í bæinn og ætla ég bara að segja tvennt í viðbót sem mun ljúka þessari færslu.
Það er cool að finna sér bíl á laugarveginum sem er að hlusta á teqnó og láta hann hækka verulega í græjunum og dansa fyrir framan bílinn með fullt af öðru fólki niður ALLAN laugarveginn.
Svo er það víst inni í dag að þegar meður er búinn að pissa að hlaupa með buxurnar á hælunum þvert yfir laugarveginn og vera flengdur af gaur hóst hóst allihóst.

Setti inn nýja könnun og verður nú alveg fróðlegt að sjá hvað kemur út úr henni.
það vita nottla allir að ég er yfirburða maður í þessu þannig að ég er bara að sjá hver er mér næstur.

Heyrðu þá segi ég bara
SSEEIINNNNAA!!!
Heimir Þór Árnason
13 athugasemdir

Stebbi Hilmars í grettukeppnni.

25. ágúst 2006 klukkan 17:35
Sælt veri fólkið ég var að bæta við nokkrum myndum í albúmin mín, nokkrar bara af spánarleiknum.
Náði einni þrusu fyndinni mynd á leiknum sem var samt alveg rosalega óvart og svo vildi það svo skemmtilega til að þegar að ég skoðaði myndina að þetta var stebbi Hilmars. Tékkiði á þessu.


Hahahahahahahahahaha...... sjáiði hvað kallinn er einbeittur!!

Annars er ég bara ferskur.

Svo er þessi x-box tölva greinilega málið í dag því maður er alveg hættur að ná sambandi við þá nokkra stráka, nefni engin nöfn. Bertidaðigunzmaggiknútur.
Það er verið að spila poker bara online allar nætur og ekkert verið að taka þátt í amstri dagsins út af þessari x-box, spurning um að fjárfesta í einni þannig græju.

Ég sá líka að fólk er ekkert að digga vinkonu mína storm Large, en það er bara eitthvað sem þið verðið að lifa með.

En ég spyr bara að einni spurningu.
Hvar er ívar? Hef leytað af honum á öllum helstu súlustöðum bæjarins og xxx búðum en hann er hvergi að finna. Þeir sem hafa einhverjar upplýsingar um ferðir hans endilega commenta hér og láta mig vita.

Svo er ég kominn með nýjung í þetta hjá mér.
Ég mun velja minn mann á 3 vikna fresti til að refsa pezzu með mér. Það sem sá hinn sami þarf að gera er að......................
Vera snillingur og hann bara ræður á hvaða sviði það er, ég er búinn að skipa dómnefnd í málið sem mun svo eftir 3 vikur velja einhvern heppinn mann til að refsa pezzu með stráknum sér að kostnaðalausu.
Heimir Þór Árnason
17 athugasemdir

Storm Large og friður.

21. ágúst 2006 klukkan 20:31
Já það er nú gott að sjá að fólk er hætt að deila á lomez síðunni.
Gummi mete sagði við mig á meðan að allt var í háalofti. "Heimir, fólk er bara að rífast á fullu á síðunni þinni á meðan að fólk er að deyja í afríku. Segðu þeim að hætta."
Gummi var svo að meina þetta að hálfa væri meira en hellingur, vá hvað ég hló mikið.

Um daginn fór maður á Ísland-Spánn og voru teknar nokkrar myndir sem koma nú bráðum. Diddi var svona inside man á þessum leik og lét ég hann redda mér eitthvað á bakvið til að sjá goðið, cesc Fabregas, en hann var nú bara ekkert að hafa fyrir því að heilsa kallinum heldur rölti hann bara upp og út. en jæja hvað með það ingibjörg sá allavega ljósið í lífinu sínu með berum augum en hún er eitthvað skotin í Luis Garcia, hann má nú eiga það að hann er nú alveg myndarlegur.

En svo er það þessi blessaði þáttur rockstar supernova. Okkar maður er nottla Magni sem er bara að gera hið fínasta mót í þessum þáttum og er alltaf með 3 bestu söngvurum, en það er nú alveg ástæða akkuru ég límist við þennan blessaða skjá þegar að það kemur að þessum þætti og ástæðan er..........


Þurfum við eitthvað að ræða þessa dömu eitthvað nánar eða.
Ok Inga er skotin í Garcia en þá er ég bara skotinn í Storm Large.
ég vill að menn commenti á það hvort þeir séu á sama máli og ég. eða eru þeir sammála raggers brown um að Dilana eða hvað hún nú heitir sé flottari?

Svo vill ég velja didda sem mann vikunnar.
ástæða? það þarf enga ástæðu til að velja þennan mann, hann er bara öðlingur og á allt gott skilið í lífinu!
Heimir Þór Árnason
19 athugasemdir

Raggers Brown eða bara mr Poker!!

13. ágúst 2006 klukkan 21:28
Herðu haldiði að ég hafi ekki bara kíkt á pokermót í gær fárveikur, þarna voru komnir svona u.þ.b 30 manns og potturinn var rosa flottur.


1. Sætið tók 70 þúsund
2. Sætið tók 20 þúsund
3. Sætið tók 10 þúsund


Þetta byrjaði rólega fyrir mig, Raggers var ekki með mér á borði, þannig að ég get ekkert sagt um það hvernig honum gekk þar en alla leið fór strákurinn minn á úrslitaborðið, þar náði ég aðeins að fylgjast með honum og vá þessi maður kann sko að spila, þanna sá ég virkilega hvernig hann spilar og það má með sanni segja að það er svo mikið pro poker potetial í þessum manni að hálfa væri meira en hellingur.
Hann fór í heads up á móti mr fýlu sem var frekar shitaður, raggers bauð honum að semja um peningaverðlaunin en gaurinn sagði bara "nei maður" þá sagði raggers bara "ok strákar byrjiði að undirbúa jarðaförina hans" btw þessi gaur var með svona 10 sinnum meira chips en raggers.
Raggers tók þennan litla strák og flengdi hann með dagblaði og tróð fiðrildum upp í rassgatið á honum og sagði " hvernig er svo þessi fiðringur að tapa á móti raggers?"
Þetta var yndislegt að horfa á og tók raggers 70.000 með sér út af klúbbnum og var vel af því kominn.

Annas er ég bara ógeðslega veikur og svaf lítið sem ekkert í nótt vegna þess að ég fékk ljóta eyrnabólgu, ég beilaði á bertan og vona að hann geti fyrigefið mér því annas væri ég bara í öndunarvél núna.

Maður mánaðarins er enginn annar en Raggers brown sugar, sem kenndi mér að spila poker og gefur mér alltaf góð ráð. varð að setja inn flottustu mynd ever af honum raggers og stelpur þessi gaur er á lausu og nr hjá honum er 6928766

Þessi maður er svo sannarlega vel að þessum titli kominn og á hann inni pizzustemmara með Homie "Q" eins og hann kallar mig oft á tíðum!!
Heimir Þór Árnason
24 athugasemdir

Hvar err alli???

11. ágúst 2006 klukkan 03:45
Setning helgarinnar er án efa, Hvar err alli? þessi setning var tekin og nauðguð og er það bara gott því þetta er endalaust fyndið.

Ég ætla mér ekkert að missa mig í einhver skrif því ég er nú bara svo gott sem bara veikur eftir þessa snilldar helgi, get ekki beðið eftir næsta ári. Var sáttur með stemninguna sem ég Ívar, Heimski diddi, heimska Magga og Hjölli vorum í, djömmuðum langt fram á morgun og chilluðum bara í brekkunni þegar allir voru farnir heim í tjöldin sín. Sötruðum bara bjórin sem fólkið skildi eftir í brekkunni í stólunum sem við fundum!! tókum hvítu tjöldin og refsuðum þeim með okkar fögru raddböndum.

ÉG verð bara að viðurkenna það að ég er svo tómur núna að ég get bara ekki skrifað neitt, vildi bara koma með eitthvað fresh shit.

Jæja later þá!!

Heimir Þór Árnason
Engin athugasemd